Svona lítur vindaspá Veðurstofunnar út klukkan 15 á morgun.

Hvasst verður við fjöll um tíma á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 17. október á milli kl. 12 og 18, er spáð snörpum suðaustan hviðum við Hafnarfjall, allt að 35 m/s. Einnig á utanverðu Kjalarnesi og í Hvalfirði, sem og á norðanverðu Snæfellsnesi á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Vegagerðin biðlar til ökumanna að taka tillit til þessa.