Besti hrútur sýningarinnar, eða Mýrahrúturinn 2023, var valinn svarti hrúturinn nr. 75 frá Staðarhrauni. Hér halda eigendur hans, þau Jakob Eyjólfsson og Guðdís Jónsdóttir, í hrútinn. Ljósm. Sigurjón Helgason

Úrslit í Mýrahrútnum 2023

Hrútasýningin Mýrahrúturinn var haldinn að Lækjarbug laugardaginn 14. október. Skráðir voru á sýninguna tíu mislitir lambhrútar, 14 kollóttir, tveir ferhyrndir og 21 hvítur hyrndur. Voru þeir á svæðinu frá Dalsmynni í vestri að Borgarnesi í suðri.