
Starfshópur ráðherra vill leggja niður starfsemi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga
Síðastliðinn miðvikudag var haldinn fundur forsvarsmanna heilbrigðiseftirlita sveitarfélaganna með umhverfisráðherra. Þar var tilkynnt um að leggja eigi niður heilbrigðiseftirlitin í núverandi mynd og færa málaflokkinn frá sveitarfélögum og að nær öllu leyti til ríkisins. Gert er ráð fyrir að matvælahlutinn færist til Matvælastofnunar og umhverfis- og hollustuháttamálin í nýja Umhverfis- eða loftslagsstofnun. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í október á síðasta ári starfshóp, í samráði við matvælaráðherra, sem fékk það hlutverk að leggja til nýtt fyrirkomulag á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum í landinu. Starfshópurinn hefur nú skilað ráðherra tillögum sínum og verða þær kynntar á fundi sem boðaður hefur verið klukkan 11:30 á morgun. Tillögur starfshópsins snúa að nýju fyrirkomulagi við eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum. Formaður starfshópsins var Ármann Kr. Ólafsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogsbæ, en auk hans skipuðu hann Gunnar Alexander Ólafsson sérfræðingur og Sigríður Gísladóttir dýralæknir.