Nýútskrifaðir slökkviliðsmenn ásamt slökkviliðsstjóra og varaslökkviliðsstjóra. Texti og ljósmyndir: Guðrún Jónsdóttir

Hundrað ára öryggi – afmæli Slökkviliðs Borgarbyggðar – myndasyrpa

Síðastliðinn laugardag var aldarafmæli Slökkviliðs Borgarbyggðar fagnað í Hjálmakletti í Borgarnesi. Fjöldi fólks var mætt til að samfagna, enda er gott slökkvilið gríðarlega mikilvægur þáttur í hverju samfélagi. Auk íbúa og annarra gesta mátti þar sjá fulltrúa frá öðrum slökkviliðum landsins.