Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.

Lögðu fram tvær bókanir um umhverfisslys í sjókvíaeldi

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var umræða um það umhverfisslys að fjöldi frjórra eldislaxa hefur sloppið úr sjókví í Patreksfirði og leitar nú upp í laxveiðiár m.a. í Borgarbyggð. Tvær bókanir um málið voru lagðar fram og ganga þær mjög misjafnlega langt.