Fréttir

true

Styrkir greiddir út til fjárfestinga í kornrækt

Matvælaráðuneytið hefur úthlutað fjárfestingastuðningi í kornrækt 2024. Stuðningurinn er veittur til fjárfestinga í kornþurrkun, korngeymslum og tilheyrandi tækjabúnaði og er einn þáttur aðgerðaráætlunar þar sem gert er ráð fyrir að verja um tveimur milljörðum króna til átaks í kornrækt á árunum 2024-2028. Alls bárust 13 umsóknir og samkvæmt þeim er samanlögð fjárfesting umsækjenda 893 milljónir…Lesa meira

true

Líf í Lundi á laugardaginn

Skógræktarfélag Skilmannahrepps býður til viðburðarins „Líf í lundi í Álfholtsskógi“ laugardaginn 22. júní frá klukkan 12 til 16. Á dagskrá verður mandölugerð, plöntugreining, axarkast og tálgunarkennsla fyrir börn sem fer fram frá klukkan 13 til 15. Fræðsluganga um skóginn verður klukkan 14 og tekur um eina klukkustund. Í Furuhlíð verður ljósmyndasýning Áskels Þórissonar, þar sem…Lesa meira

true

Gunni Hó kominn í hóp þeirra bestu í pílunni

Skagamaðurinn Gunni Hó tryggði sér sæti í Úrvalsdeildinni í pílu með sigri á pílumótinu UK4 sem Pílufélag Reykjanesbæjar hélt síðasta þriðjudagskvöld. Gunni spilaði af gríðarlegu öryggi allt mótið og tapaði einungis fjórum leggjum í níu leikjum. Í úrslitaleiknum lagði hann Lukasz Knapik örugglega 5-1 og sætið því fyllilega verðskuldað. Keppni í Úrvalsdeildinni í pílu verður…Lesa meira

true

Stefnt að skóflustungu í haust að nýju knatthúsi í Borgarnesi

Opið hús var í Ráðhúsi Borgarbyggðar síðdegis í gær, en þar voru stjórnendur og starfsfólk Borgarbyggðar ásamt hönnuðum og ráðgjöfum frá EFLU og Landmótun sem tóku á móti gestum. Íbúar gátu þar kynnt sér tillögu að breytingu að aðalskipulagi og að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið við Þorsteinsgötu í Borgarnesi. Þar á nú að byggja nýtt…Lesa meira

true

Ráðherra boðar flutning Náttúrufræðistofnunar á Vesturland

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra flutti nú rétt í þessu skýrslu á Alþingi þar sem hann upplýsir um þá ákvörðun sína að flytja höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar frá Garðabæ á Vesturland. Nánari staðsetning verður hins vegar ákveðin í samráði við forstöðumenn nýju stofnunarinnar og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi. Í máli ráðherra kom m.a. fram að…Lesa meira

true

Erlendum ríkisborgurum fjölgar margfalt hraðar en íslenskum

Í nýjum tölum Hagstofunnar kemur fram að alls voru 78.259 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. júní síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.836 einstaklinga frá 1. desember 2023, eða um 5,2%. Á þessu tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 659 einstaklinga, eða um 0,2%. Nú er hlutfallið þannig að 80,6% íbúa eru með…Lesa meira

true

Skallagrímur úr leik í Fótbolti.net bikarnum

KFK og Skallagrímur áttust við í 32-liða úrslitum í Fótbolti.net bikarnum í gærkvöldi og var leikurinn á gervigrasvellinum í Fagralundi í Kópavogi. Ein deild er á milli þessara liða á Íslandsmótinu, KFK leikur í 3. deild en Skallarnir í þeirri fjórðu og því erfitt verkefni fyrir gestina. Þeir komust þó yfir á 8. mínútu þegar…Lesa meira

true

Truflast af símanotkun annarra í umferðinni en nota samt sjálf símann

Rúmlega fjórðungur Íslendinga lætur símanotkun annarra í umferðinni trufla sig mikið en nota samt sjálf símann undir stýri. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup fyrir Samgöngustofu sem framkvæmd var nú í júní. Í maí ýttu Sjóvá og Samgöngustofa úr vör herferðinni „Ekki taka skjáhættuna.“ Markmið hennar er að vekja athygli á þeirri hættu sem…Lesa meira

true

Úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum einum milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þetta er hæsta úthlutun úr sjóðnum til þessa. Úthlutanirnar eru í samræmi við tillögur stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra sem leggur mat á umsóknir í samræmi við reglugerð um sjóðinn og gerir tillögur til ráðherra um úthlutanir úr honum. Hlutverk sjóðsins er að stuðla…Lesa meira

true

Kári í 16-liða úrslit í Fótbolti.net bikarnum eftir vítaspyrnukeppni

Það var aldeilis boðið upp á spennu og dramatík þegar Höttur/Huginn og Kári mættust í 32-liða úrslitum í Fótbolta.net bikarnum í gærkvöldi. Höttur/Huginn spila deild ofar en Kári á Íslandsmótinu eða í 2. deild og því á brattann að sækja fyrir Kára. Leikið var á gervigrasvellinum á Fellavelli á Egilsstöðum og fór viðureignin alla leið…Lesa meira