
Núverandi höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar Íslands eru í Urriðaholti í Garðabæ, en við sameininguna verða þær, samkvæmt ákvörðun ráðherra, fluttar á Vesturland. Ljósm. Erling Ólafsson
Ráðherra boðar flutning Náttúrufræðistofnunar á Vesturland
Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis,- orku- og loftslagsráðherra flutti nú rétt í þessu skýrslu á Alþingi þar sem hann upplýsir um þá ákvörðun sína að flytja höfuðstöðvar Náttúrufræðistofnunar frá Garðabæ á Vesturland. Nánari staðsetning verður hins vegar ákveðin í samráði við forstöðumenn nýju stofnunarinnar og Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi.