
Vinnslutillaga að útliti fjölnotahúss í Borgarnes. Samsett mynd: EFLA
Stefnt að skóflustungu í haust að nýju knatthúsi í Borgarnesi
Opið hús var í Ráðhúsi Borgarbyggðar síðdegis í gær, en þar voru stjórnendur og starfsfólk Borgarbyggðar ásamt hönnuðum og ráðgjöfum frá EFLU og Landmótun sem tóku á móti gestum. Íbúar gátu þar kynnt sér tillögu að breytingu að aðalskipulagi og að nýju deiliskipulagi fyrir íþróttasvæðið við Þorsteinsgötu í Borgarnesi. Þar á nú að byggja nýtt knatthús, eða fjölnota íþróttahús, vestan við Skallagrímsvöll.