Gunni Hó keppir í pílu með þeim bestu í haust. Ljósm. vaks

Gunni Hó kominn í hóp þeirra bestu í pílunni

Skagamaðurinn Gunni Hó tryggði sér sæti í Úrvalsdeildinni í pílu með sigri á pílumótinu UK4 sem Pílufélag Reykjanesbæjar hélt síðasta þriðjudagskvöld. Gunni spilaði af gríðarlegu öryggi allt mótið og tapaði einungis fjórum leggjum í níu leikjum. Í úrslitaleiknum lagði hann Lukasz Knapik örugglega 5-1 og sætið því fyllilega verðskuldað.