Fréttir

true

Erlendum ríkisborgurum fjölgar margfalt hraðar en íslenskum

Í nýjum tölum Hagstofunnar kemur fram að alls voru 78.259 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. júní síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.836 einstaklinga frá 1. desember 2023, eða um 5,2%. Á þessu tímabili fjölgaði íslenskum ríkisborgurum um 659 einstaklinga, eða um 0,2%. Nú er hlutfallið þannig að 80,6% íbúa eru með…Lesa meira

true

Skallagrímur úr leik í Fótbolti.net bikarnum

KFK og Skallagrímur áttust við í 32-liða úrslitum í Fótbolti.net bikarnum í gærkvöldi og var leikurinn á gervigrasvellinum í Fagralundi í Kópavogi. Ein deild er á milli þessara liða á Íslandsmótinu, KFK leikur í 3. deild en Skallarnir í þeirri fjórðu og því erfitt verkefni fyrir gestina. Þeir komust þó yfir á 8. mínútu þegar…Lesa meira

true

Truflast af símanotkun annarra í umferðinni en nota samt sjálf símann

Rúmlega fjórðungur Íslendinga lætur símanotkun annarra í umferðinni trufla sig mikið en nota samt sjálf símann undir stýri. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup fyrir Samgöngustofu sem framkvæmd var nú í júní. Í maí ýttu Sjóvá og Samgöngustofa úr vör herferðinni „Ekki taka skjáhættuna.“ Markmið hennar er að vekja athygli á þeirri hættu sem…Lesa meira

true

Úthlutanir úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum einum milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þetta er hæsta úthlutun úr sjóðnum til þessa. Úthlutanirnar eru í samræmi við tillögur stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra sem leggur mat á umsóknir í samræmi við reglugerð um sjóðinn og gerir tillögur til ráðherra um úthlutanir úr honum. Hlutverk sjóðsins er að stuðla…Lesa meira

true

Kári í 16-liða úrslit í Fótbolti.net bikarnum eftir vítaspyrnukeppni

Það var aldeilis boðið upp á spennu og dramatík þegar Höttur/Huginn og Kári mættust í 32-liða úrslitum í Fótbolta.net bikarnum í gærkvöldi. Höttur/Huginn spila deild ofar en Kári á Íslandsmótinu eða í 2. deild og því á brattann að sækja fyrir Kára. Leikið var á gervigrasvellinum á Fellavelli á Egilsstöðum og fór viðureignin alla leið…Lesa meira

true

„Langar vegalengdir virðast henta mér frekar vel“

Rætt við hlaupakonuna Ester Maríu Ólafsdóttur sem elskar að hlaupa langt Skagakonan Ester María Ólafsdóttir tók á dögunum þátt í utanvegahlaupi sem nefnist Hengill Ultra Trail og var það haldið í þrettánda sinn. Boðið var upp á fjölbreyttar vegalengdir í hlaupinu, allt frá 5 km upp í 106 km, sem er lengsta vegalengdin sem boðið…Lesa meira

true

Ferðaskrifstofan Simply the West opnuð á Hellnum

Blaðamaður Skessuhorns kom undir lok síðustu viku við á nýrri ferðaskrifstofu á Snæfellsnesi. Hún nefnist Simply the West og er með bækistöðvar sínar á Hellnum. Rætt var við þau Silju Hlín Guðbjörnsdóttur og Magnús B. Johannsson, eigendur og stofnendur, sem einnig eru að opna kaffihús á Hellnum. Þau hafa áratuga reynslu af ferðaþjónustu. Magnús er…Lesa meira

true

Erasmus skiptinemar á Hvanneyri

Nú í haust munu 23 skiptinemendur setjast á skólabekk við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Um er að ræða metfjölda Eramus skiptinema og koma nemarnir víðs vegar að frá Evrópu. LbhÍ á Hvanneyri býður upp á nálægð við náttúruverndarsvæðið Andakíl en einnig nálægð við fjölbreytta náttúru í Borgarfirði. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri er með samstarfsnet við evrópska háskóla…Lesa meira

true

Borgfirðingabók komin út í tuttugasta og fimmta skiptið

Borgfirðingabók, ársrit Sögufélags Borgarfjarðar (SFB), er komin út í 25. skipti en eins og nafnið ber með sér kemur hún út á hverju ári. Samfelld útgáfa hefur verið frá árinu 2004 en í byrjun níunda áratugarins komu út fjórir árgangar í þremur bókum. Starfssvæðið er núna frá Botnsá í Hvalfirði að Haffjarðará en náði áður…Lesa meira