Silja, Ana og Magnús í kaffihúsinu Simply Café. Ljósm. hig

Ferðaskrifstofan Simply the West opnuð á Hellnum

Blaðamaður Skessuhorns kom undir lok síðustu viku við á nýrri ferðaskrifstofu á Snæfellsnesi. Hún nefnist Simply the West og er með bækistöðvar sínar á Hellnum. Rætt var við þau Silju Hlín Guðbjörnsdóttur og Magnús B. Johannsson, eigendur og stofnendur, sem einnig eru að opna kaffihús á Hellnum. Þau hafa áratuga reynslu af ferðaþjónustu. Magnús er löggiltur fjallaleiðsögumaður, þekkir Vesturland eins og lófann á sér og hefur sérhæft sig í lúxusferðum. Silja hefur starfað við sölu- og gæðastjórnun í ferðaþjónustu í mörg ár, lengst af hjá Travel Connect.

Ferðaskrifstofan Simply the West opnuð á Hellnum - Skessuhorn