Borgfirðingabók komin út í tuttugasta og fimmta skiptið

Borgfirðingabók, ársrit Sögufélags Borgarfjarðar (SFB), er komin út í 25. skipti en eins og nafnið ber með sér kemur hún út á hverju ári. Samfelld útgáfa hefur verið frá árinu 2004 en í byrjun níunda áratugarins komu út fjórir árgangar í þremur bókum. Starfssvæðið er núna frá Botnsá í Hvalfirði að Haffjarðará en náði áður að Hítará, lenging til vesturs var samþykkt á aðalfundi félagsins árið 2023. Vegna þessara breytingar skartar Borgfirðingabók nú í fyrsta sinn greinum úr Kolbeinsstaðahreppi, tveimur frekar en einni. Verði bókanna hefur ætíð verið stillt í hóf og er það gerlegt vegna þess að öll vinna í tengslum við útgáfuna er unnin í sjálfboðavinnu, fyrir utan umbrot og prentun.

Borgfirðingabók komin út í tuttugasta og fimmta skiptið - Skessuhorn