Haldið var upp á daginn í Snæfellsbæ. Meðal annars var Landsbankahlaup haldið fyrir ungdóminn þar sem allir keppendur fengu verðlaun og ís að hlaupi loknu. Síðan var farið í skrúðgöngu að Sjómannagarðinum í Ólafsvík þar sem hátíðardagskrá fór fram. Fjallkonan að þessu sinn var Patrycja Rekeltiene sem flutti hátíðarræðu og kirkjukórinn fluttu nokkur lög og helgistund sem sr. Brynhildur Óla Einarsdóttir annaðist. Davíð Svanur Hafþórsson var með ræðu nýstúdents og tónlistaratriði voru flutt. Ljósm. af.

Hátíðarhöld á 17. júní víðs vegar á Vesturlandi – Myndasyrpa

Síðastliðinn mánudag klæddi fólk sig upp og fagnaði þjóðhátíðardeginum, en lýðveldið varð þar að auki 80 ára í ár og því góðum áfanga að fagna. Hér á opnunni birtum við myndir héðan og þaðan af Vesturlandi.

Hátíðarhöld á 17. júní víðs vegar á Vesturlandi - Myndasyrpa - Skessuhorn