Fréttir

true

Systur áttu fyrirbura sama daginn

Viðtal úr safni Skessuhorns frá árinu 2006 Systurnar Drífa og Brynja Baldursdætur eru fæddar með árs millibili og hafa alltaf verið samrýndar. Árið 2004 kom í ljós að þær ættu báðar von á sínu öðru barni. Fæðingardagurinn var settur með mánaðar millibili en báðar áttu þær börnin á Valentínusardaginn, þann 14. febrúar á síðasta ári.…Lesa meira

true

Sundlaug Stykkishólms lokað tímabundið

Kominn er tími á viðhald á sundlauginni í Stykkishólmi og þarf því að loka lauginni í einhvern tíma. Áætlaður framkvæmdatími er þrjár vikur og verður sundlauginni lokað fyrir almenning frá og með næsta mánudegi, 13. maí. Þetta kemur fram á vefsíðu sveitarfélagsins. Viðhald á lauginni hefur staðið til í nokkurn tíma. Viðhaldslokun á 25 metra…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskipið MS Fram kom í Stykkishólm

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Stykkishólmi sigldi í höfn í dag og var það norska skipið MS Fram sem kom að bryggju. Farþegar eru um 300 og starfsfólk 80 talsins. Móttökurnar voru ekki af verri endanum en það voru þeir Jón Jakob Jakobsson hafnarvörður, Jón Beck Agnarsson bæjarverkstjóri, Jón Páll Gunnarsson og Ingvar Kristjánsson starfsmenn áhaldahúss…Lesa meira

true

Skólakórinn hélt tónleika í kirkjunni

Skólakór Grunnskóla Grundarfjarðar hélt glæsilega tónleika í Grundarfjarðarkirkju í gær, á uppstigningardag. Kórinn er hluti af skólastarfi og eru nemendur úr fyrsta til sjöunda bekk sem eru í honum. Gréta Sigurðardóttir kennari stýrir krökkunum og óhætt er að segja að afraksturinn hafi verið frábær. Nokkrir nemendur sungu einsöng og voru sumir að gera það í…Lesa meira

true

Ný varatreyja Skallagríms vekur athygli

Knattspyrnudeild Skallagríms hefur kynnt til sögunnar splunkunýja Skallagrímstreyju og er um að ræða varabúning liðsins. Treyjan er hönnuð af Borgfirðingnum Stefáni Má Sigurðssyni og Errea á Íslandi. Treyjan verður framleidd í öllum stærðum og hægt er að panta hana í forsölu á shop.errea.is/egill og kostar treyjan 9.990 kr. Í lýsingu á treyjunni segir á síðu…Lesa meira

true

Útskriftarefni FSN hlupu af sér hornin

Elstu nemendurnir í Fjölbrautaskóla Snæfellinga slepptu af sér beislinu síðasta miðvikudag þegar þau dimmiteruðu venju samkvæmt. Þau voru uppstríluð sem álfaprinsessur og mættu hress og kát í skólann þennan morgun. Þá var þeim boðið í vöfflukaffi á kennarastofunni. Eftir kaffið var brugðið á leik með kennurum í stóra salnum og var ekki annað að sjá…Lesa meira

true

Stefán Teitur danskur bikarmeistari

Skagamaðurinn Stefán Teitur Þórðarson varð í gær danskur bikarmeistari þegar lið hans Silkeborg vann AGF, 1-0, á Parken í Kaupmannahöfn að viðstöddum tæplega 40 þúsund áhorfendum. Stefán var valinn maður leiksins í leikslok og fékk fyrir það bikar sem „Årets Pokal Fighter 2024“ eða baráttumaður bikarsins árið 2024. Oliver Sonne skoraði eina mark Silkeborg á…Lesa meira

true

Vilja að áform um vetnis- og ammoníakframleiðslu í Hvalfirði verði stöðvuð

Nú er í gangi söfnun undirskrifta þar sem mótmælt er áformum um vetnis- og ammoníakframleiðslu Qair Íslandi ehf. á Grundartanga. Söfnun undirskrifta hófst 24. apríl síðastliðinn og verður hægt að rita nafn sitt við mótmælin til 10. júní næstkomandi. Textinn með söfnun mótmælanna er eftirfarandi: „Til stendur að leggja gífurlegt landflæmi í Hvalfirði undir framleiðslu…Lesa meira

true

Stofnfundur Viðreisnar á Akranesi

Boðað hefur verið til stofnfundar á félagi Viðreisnar á Akranesi. Í tilkynningu kemur fram að fundurinn verður mánudaginn 13. maí klukkan 20:00 á Breiðinni – nýsköpunarsetri. Dagskráin er eftirfarandi: 1 Setning fundar, kosning fundarstjóra og ritara 2. Ávarp flokksforystu Viðreisnar 3. Stofnun félags og staðfesting samþykkta 4. Kosning stjórnar og ákvörðun prókúruhafa 5. Kosning skoðunarmanna…Lesa meira

true

Borgarneskirkja er nú friðlýst

Fjölmenni var mætt í Borgarneskirkju í gær. Fyrir hádegi var 65 ára vígsluafmæli kirkjunnar, en eftir hádegi var hún svo formlega friðlýst af ráðherra. Borgarneskirkja er um leið fyrsta mannvirkið í Borgarnesi til að hljóta friðlýsingu. Við friðlýsingarathöfnina steig Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis- orku- og loftslagsáðherra fyrstur í pontu. „Ég ólst upp við það að…Lesa meira