Undirritun friðlýsingar fór fram á kirkjuholtinu. Ljósm. hig

Borgarneskirkja er nú friðlýst

Fjölmenni var mætt í Borgarneskirkju í gær. Fyrir hádegi var 65 ára vígsluafmæli kirkjunnar, en eftir hádegi var hún svo formlega friðlýst af ráðherra. Borgarneskirkja er um leið fyrsta mannvirkið í Borgarnesi til að hljóta friðlýsingu.