
Vilja að áform um vetnis- og ammoníakframleiðslu í Hvalfirði verði stöðvuð
Nú er í gangi söfnun undirskrifta þar sem mótmælt er áformum um vetnis- og ammoníakframleiðslu Qair Íslandi ehf. á Grundartanga. Söfnun undirskrifta hófst 24. apríl síðastliðinn og verður hægt að rita nafn sitt við mótmælin til 10. júní næstkomandi. Textinn með söfnun mótmælanna er eftirfarandi:
„Til stendur að leggja gífurlegt landflæmi í Hvalfirði undir framleiðslu á vetni og ammóníaki sem eru mjög eldfimar lofttegundir og geta valdið sprengingu á stærsta atvinnusvæði Vesturlands og sett starfsmenn þar í mikla hættu. Framleiðslan mun hafa í för með sér feikilega sjón- og hljóðmengun og getur valdið alvarlegri skaðsemi á lífríki á landi og í sjó. Framleiðslan þarfnast 840 MW af rafmagni (meira en afkastagetu Kárahnjúkavirkjunnar, 690 MW) og krefst því óheyrilegrar rafmagnsframleiðslu einkafyrirtækja s.s. með vindmyllum. Þeim fylgja óafturkæf áhrif á náttúruna í uppbyggingu, notkun og förgun. Nýtingin á rafmagninu yrði ekki nema 25%, að kalla þetta grænan kost í orkuskiptum er vægast sagt öfugmæli. Vatnsnotkun við framleiðslu yrði um 277.200 lítrar/klst. auk kælivatns! Nú þegar njóta íbúar í Hvalfirði og leikskólabörn í í Melahverfi skertra lífsgæða vegna hávaða og mengunar frá stóriðjunni á Grundartanga og mun það einungis ágerast með þessari verksmiðju.“
Fram kemur að ábyrgðarmaður með mótmælunum er Daniela Redempta Pax Gross. Í morgun höfðu 404 ritað nafn sitt við mótmælin.