
MS Fram var byggt árið 2007 og endurbætt árið 2022. Ljósm. stykkisholmur.is
Skemmtiferðaskipið MS Fram kom í Stykkishólm
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins í Stykkishólmi sigldi í höfn í dag og var það norska skipið MS Fram sem kom að bryggju. Farþegar eru um 300 og starfsfólk 80 talsins. Móttökurnar voru ekki af verri endanum en það voru þeir Jón Jakob Jakobsson hafnarvörður, Jón Beck Agnarsson bæjarverkstjóri, Jón Páll Gunnarsson og Ingvar Kristjánsson starfsmenn áhaldahúss og Einar Þór Strand sem tóku á móti skipinu með bros á vör.