
Nýbirtar tölur Hagstofu Íslands greina frá því að í mars 2024 voru 9.500 atvinnulausir samkvæmt árstíðaleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar. Árstíðaleiðrétt hlutfall atvinnulausra var 4,1%, hlutfall starfandi á vinnumarkaði var 77,8% og atvinnuþátttaka var 81,1%. Atvinnuleysi jókst um 0,5 prósentustig á milli mánaða á sama tíma og hlutfall starfandi minnkaði um 0,6 prósentustig.Lesa meira








