
Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar 11. apríl síðastliðinn var samþykkt að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Nýhönnun ehf., um aðalhönnun viðbyggingar við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi. Leikskólinn tók til starfa haustið 2007 en skólinn stendur í útjaðri Borgarness, þar sem villtur gróður og náttúra eru við garðhliðið. Kristín Gísladóttir, skólastjóri Uglukletts, segir spennandi tíma framundan.…Lesa meira








