
Fundur haldinn vegna verkefnisins Gott að eldast
Miðvikudaginn 17. apríl sl. komu fulltrúar sveitarfélaga, hjúkrunarheimila og HVE saman til fundar vegna verkefnisins Gott að eldast á Vesturlandi. Ráðgjafar verkefnisins hjá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu fóru yfir stöðu verkefnisins á landsvísu ásamt því að fulltrúar verkefnisins á Vesturlandi fjölluðu um verklag og fleira vegna útfærslu þess á Vesturlandi. Fundurinn var haldinn á Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi og sögðu hjúkrunarforstjóri og framkvæmdastjóri Höfða frá starfsemi heimilisins og að lokum fengu fundargestir leiðsögn um húsið og þær framkvæmdir sem eru í gangi á staðnum.