Kúalaug á Reykhólum. Ljósm: Reykhólahreppur

Kúalaug á Reykhólum fær myndarlegan styrk

Síðastliðinn föstudag úthlutaði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Alls voru 29 verkefni sem hlutu styrki en samtals var úthlutað 538,7 milljónum króna sem dreifast um allt land. Tveir stærstu styrkirnir voru að upphæð 90 milljónir króna hvor. Annars vegar til áframhaldandi uppbyggingar við Stuðlagil á Austurlandi og hins vegar til uppbyggingar gönguleiðar og áningarstaðar á vegum Sveitarfélagsins Hornafjarðar við Múlagljúfur. Þriðji stærsti styrkurinn á þessu ári, rúmar 52 milljónir króna, fer í uppbyggingu áningarstaðar með aðgengi fyrir alla við Kúalaug á Reykhólum.

Kúalaug á Reykhólum fær myndarlegan styrk - Skessuhorn