Ellefu gild framboð til embættis forseta Íslands

Landskjörstjórn hefur nú úrskurðað að ellefu gild framboð eru til embættis forseta Íslands, en kosið verður laugardaginn 1. júní. Framboð tveggja voru úrskurðuð ógild, þeirra Kára Vilmundarsonar Hansen og Viktors Traustasonar. Aldrei hafa fleiri verið í framboði. Nú verða frambjóðendur tveimur fleiri en voru í forsetakosningunum 2016 og fimm fleira en 2012. Þetta er því í þriðja skipti á tólf árum sem met er sett í fjölda frambjóðenda til forseta.

Ellefu gild framboð til embættis forseta Íslands - Skessuhorn