Halla Hrund Logadóttir nýtti liðna helgi til að fara um Dalina og í heimsókn til Hólmavíkur. Laugardagurinn hófst á Hjúkrunarheimilinu að Fellsenda þar sem harmonikkan var dregin fram, en hér sést hún spila með Halldóri Þórðarsyni. Ljósm. aðsend

Frambjóðendur á ferð og flugi

Nú er baráttan um Bessastaði hafin fyrir alvöru hjá þeim ellefu frambjóðendum sem verða í kjöri. Frambjóðendur hafa margir verið á faraldsfæti að undanförnu og meðal annars komið við á Vesturlandi. Skessuhorn vekur athygli á að hægt er að senda ljósmyndir úr framboðskynningum á ritstjórn til birtingar, á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is