Fréttir

true

Vill byggja upp ullarvinnslu fyrir Dalina

Rætt við Ingibjörgu Þórönnu Steinudóttur, frumkvöðul í Rauðbarðaholti í Hvammssveit Ef allt gengur eftir verður nýju afurðafyrirtæki ýtt úr vör vorið 2025 í Dölum, því margrómaða landbúnaðarhéraði. Á bænum Rauðbarðaholti í Hvammssveit stefnir Ingibjörg Þóranna Steinudóttir að því að setja á fót ullarvinnslu, sem þegar hefur fengið nafnið Urður, og vonast hún til að geta…Lesa meira

true

Hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu aldrei verið meiri

Á heimasíðu Hagstofu Íslands kemur fram að hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu ársins 2023 nam 8,8% samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum ferðaþjónustureikninga og hefur aldrei verið stærri. Til samanburðar nam hlutur ferðaþjónustu í landsframleiðslu 7,5% árið 2022 og að jafnaði 8,2% á tímabilinu 2016 til 2019, fyrir kórónuveirufaraldurinn. Heildarneysla ferðamanna, innlendra og erlendra, hérlendis nam rúmlega 845 milljörðum króna…Lesa meira

true

Veiðihús við Andakílsá að taka á sig mynd

Nýtt veiðihús er nú risið við Andakílsá í Borgarfirði á sömu lóð og gamla veiðihúsið stóð. Það eru PJ Byggingar ehf sem byggja. Smiðir voru að störfum úti sem inni þegar blaðamaður Skessuhorns leit við fyrir helgi. Voru þeir að ljúka frágangi við þakkant hússins en einnig voru smiðir að störfum inni að klæða með…Lesa meira

true

Gary Martin gengur til liðs við Víking Ólafsvík

Knattspyrnudeild Víkings Ó., Knattspyrnudeild Selfoss og knattspyrnumaðurinn Gary Martin hafa gert með sér samkomulag um að Gary gangi til liðs við Víking Ó. á láni og spili með liðinu í sumar. Þetta kemur fram á FB síðu Víkings. „Gary þarf ekki að kynna fyrir áhugamönnum um íslenska knattspyrnu. Hann hefur leikið með ÍA, KR, Val,…Lesa meira

true

Grásleppuveiðidögum fjölgað

Fiskistofa mun samkvæmt reglugerð fjölga dögum hjá þeim skipum sem eru á grásleppuveiðum eða eiga eftir að fara á grásleppuveiðar. Ráðuneytið gaf út reglugerð sem tók gildi í gær. Í henni er veiðidögum í grásleppu fjölgað úr 40 í 55.Lesa meira

true

Fjölmenningarþema í Heiðarskóla

Í síðustu viku var fjölmenningarþema í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þar sem unnið var með menningu níu landa sem öll tengjast nemendum skólans á einhvern hátt. Nemendur unnu part úr degi í aldursblönduðum hópum og markmið verkefnisins voru m.a. að stuðla að gagnkvæmri virðingu og skilningi, varpa ljósi á fjölbreytta menningarheima og síðast en ekki síst…Lesa meira

true

Toska fríkar út á morgun

Á morgun, miðvikudag, verða tvennir áhugaverðir tónleikar haldnir í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness. Fyrri tónleikarnir verða kl. 17 og þeir síðari kl. 20. „Tónleikunum svipar til tónleikanna Ungir – gamlir sem voru haldnir um tíma í Bíóhöllinni. Á tónleikunum verða leikin og sungin íslensk dægurlög frá árunum 1960 – 2023. Þar koma fram nemendur skólans…Lesa meira

true

ÓH verktakar sjá um fiskmarkaðinn á Akranesi

Fiskmarkaður Íslands opnaði í apríl útibú sitt á ný á Akranesi sem staðsett er á Faxabraut 5. Að sögn Ragnars Smára Guðmundssonar, framkvæmdastjóra hjá Fiskmarkaði Íslands, var gengið í það að fá öll þau leyfi sem þurfti til að geta starfrækt fiskmarkað í húsnæðinu. „Það er von okkar hjá Fiskmarkaði Íslands að geta haldið úti…Lesa meira

true

Mokafli eftir hrygningarstopp

Eftir að fæðingarorlofi þorsksins lauk á sunnudaginn fóru flestir bátar frá Snæfellsbæ á sjó í gær. Var algjör mokafli í öll veiðarfæri. Dragnótarbátar voru með upp í 30 tonn eftir stuttan dag og köstuðu þeir dragnótinni 2-3 sinnum og létu það nægja til þess að spara kvótann. Sama átti við um handfærabáta; stutt að róa…Lesa meira

true

Tindur í Ólafsvík rifinn

Í gær var hafist handa við að rífa bátinn Tind SH sem hefur staðið við Hrafnabjarg í Ólafsvík sem eins konar kennileiti fyrir bæinn á afar fallegum stað. Mikill sjónarsviptir er því af brotthvarfi bátsins. Tindur SH hefur staðið á þessum stað í rétt 30 ár og hefur Lionsklúbbur Ólafsvíkur séð um umhirðu á bátnum…Lesa meira