Fréttir

true

Sundgarpar í Borgarnesi

Á síðasta ári hófst formlegt starf Sunddeildar Skallagríms að nýju eftir stutt hlé. Áhugi almennings á sundnámskeiðum kom fljótt í ljós og hófust byrjendanámskeið, skriðsundsnámskeið og reglulegar garpaæfingar. Arnheiður Hjörleifsdóttir er þjálfari Sunddeildar Skallagríms og fékk blaðamaður leyfi til að koma við á sundlaugarbakkanum á björtum en köldum apríldegi og spjallaði við Arnheiði um starfið.…Lesa meira

true

Gyða Björk kosin formaður ÍA á áttugasta ársþingi félagsins

Síðastliðinn fimmtudag var áttugasta ársþing Íþróttabandalags Akraness haldið á Garðavöllum. Seturétt á þinginu áttu 70 fulltrúar en 42 þeirra mættu. Fulltrúar voru engu að síður frá nánast öllum aðildarfélögum því einungis vantaði fulltrúa frá einu þeirra. Á þinginu ávarpaði Hrönn Ríkharðsdóttir, fráfarandi formaður, þingið og setti það. Þingforseti var kjörinn Pétur Ottesen og stýrði hann…Lesa meira

true

Bæjarstjórn kynnir hugmyndir að nýju ráðhúsi við Mánabraut

Á vef Akraneskaupstaðar er nú að finna ítarlega kynningu bæjarstjórnar á hugmyndum um nýtt ráðhús/stjórnsýsluhús við Mánabraut, þar sem skrifstofuhús fyrrum Sementsverksmiðju stendur nú. Samkvæmt hugmyndum bæjarstjórnar verður það hús rifið og annað hús byggt á lóðinni. Auk starfsemi Ráðhúss er kynntur möguleika á leigu fyrir fleiri aðila, t.d. ríkisstofnanir og er þar einkum horft…Lesa meira

true

Askja hefur opnað bílaumboð sitt á Vesturlandi

Það var létt yfir mannskapnum í gær þegar bílaumboðið Askja opnaði sölu- og þjónustuumboð við Innnesveg 1 á Akranesi. Haraldur Benediktsson bæjarstjóri færði forsvarsmönnum umboðsins blóm og bauð starfsemina velkomna í bæinn. Boðið var upp á veitingar og sýndir nýir bílar frá Mercedes-Benz, Smart, Kia og Honda en einnig er gott úrval notaðra bíla á…Lesa meira

true

Forysta Framsóknar endurnýjaði umboð sitt

Sigurður Ingi Jóhannsson var á 37. flokksþingi Framsóknar, sem fram fór um helgina, endurkjörinn formaður flokksins með rúmlega 96% greiddra atkvæða. Sigurður Ingi hefur verið formaður frá árinu 2016. Lilja Dögg Alfreðsdóttir var endurkjörin varaformaður með tæplega 90% greiddra atkvæða en hún hefur verið varaformaður frá árinu 2016. Þá var Ásmundur Einar Daðason endurkjörinn ritari…Lesa meira

true

Fór í Stýrimannaskólann og varð faðir sautján ára gamall

Viðtal úr Sjómannadagsblaði Skessuhorns 2018 við Björn Erling Jónasson í Ólafsvík „Við byrjuðum tveir jafnaldrar á síldarnót hjá pabba upp á 70% hlut, fimmtán ára gamlir,“ segir Björn Erlingur Jónasson, útgerðarmaður og fyrrum skipstjóri í Ólafsvík, um upphaf sjómennsku sinnar. Hann er nú kominn í land og Magnús bróðir hans tekinn við skipstjórn á Ólafi…Lesa meira

true

Var mikill sveitamaður í sér þótt sjómennskan hafi orðið ofan á

Viðtal í Sjómannadagsblaði Skessuhorns frá árinu 2018 við skipstjórann Albert Sveinsson „Eftir fyrsta túrinn minn sem háseti á togaranum Haraldi Böðvarssyni AK-12, þegar ég var 15 ára, sagði ég við pabba að ég ætlaði aldrei á sjó aftur enda var ég drullusjóveikur allan þennan fimm daga túr, en það var mokveiði. Ég hef nú samt…Lesa meira

true

Aukin hætta á fuglainflúensu með komu farfuglanna

Farfuglatímabilið er nú í hápunkti. Farfuglar streyma til landsins, m.a. frá sýktum svæðum í norðurhluta Evrópu þar sem fuglainflúensa hefur valdið skaða í alifuglum. Óvissustig er í gildi og því skulu allir fuglaeigendur tryggja góðar sóttvarnir í sínum fuglahópum, til að koma í veg fyrir smit frá villtum fuglum. Matvælastofnun biður almenning um að tilkynna…Lesa meira

true

Glæsilegir tónleikar í Borgarneskirkju

Minningarsjóður sem stofnaður var til minningar okkar frábæra drengs Heimis Klemenzsonar hélt sl. sunnudag tónleika í Borgarneskirkju. Í upphafi kynnti Viðar Guðmundsson, einn þeirra er skipa stjórn sjóðsins, dagskrána og kynnti söngvara og undirleikara. Boðið var upp á söngdagskrá á heimsvísu. Söngdívan úr Mosfellsdal, Sigrún Hjálmtýsdóttir, og tenórinn og sveitapilturinn úr Skagarfirði, Óskar Pétursson, ásamt…Lesa meira

true

Akranesmótið í pílu um helgina

Sá skemmtilegi atburður átti sér stað í vikunni að öll þrjú liðin frá Pílufélagi Akraness (PFA) sem taka þátt í deildarkeppni Pílukastfélags Reykjavíkur (PFR) voru saman komin í aðstöðu PFR á Tangarhöfða í Reykjavík. Liðið Flóridaskaginn er i baráttu um verðlaunasæti í A deildinni, Skaginn er búinn að tryggja sér sigur í B deildinni og…Lesa meira