
Svipmynd frá tónleikunum. Ljósm. Hanna Ágústa Olgeirsdóttir
Glæsilegir tónleikar í Borgarneskirkju
Minningarsjóður sem stofnaður var til minningar okkar frábæra drengs Heimis Klemenzsonar hélt sl. sunnudag tónleika í Borgarneskirkju. Í upphafi kynnti Viðar Guðmundsson, einn þeirra er skipa stjórn sjóðsins, dagskrána og kynnti söngvara og undirleikara. Boðið var upp á söngdagskrá á heimsvísu. Söngdívan úr Mosfellsdal, Sigrún Hjálmtýsdóttir, og tenórinn og sveitapilturinn úr Skagarfirði, Óskar Pétursson, ásamt hinni frábæru Jónínu Ernu Arnardóttur, sem sá um undirleik. Sigrún og Óskar sungu hverja perluna af annarri, þvílíkur söngur, leikur og grín!