Fréttir

true

Stofnuðu bókaklúbb í Brekkó

Í Brekkubæjarskóla á Akranesi er í gangi skemmtilegt verkefni sem heitir Draumaskólinn minn. Þar gefst nemendum tækifæri til að koma hugmyndum sínum um skólastarfið á framfæri. Börnin eru hvött til að hugsa um hvað gæti bætt skólann og fært hann nær draumaskólanum þeirra. Eiga góða stund saman Síðasta vor, í Draumaskólavinnunni, fengu þrjár stúlkur á…Lesa meira

true

Eftirvagn utan vegar við Hafnarfjall

Betur fór en á horfðist þegar eftirvagn fauk af þjóðvegi eitt, við Hafnarfjall, síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi slasaðist enginn en vindhviða hefur náð að grípa eftirvagninn með þeim afleiðingum að hann stendur nú utan vegar, eða grindin ein öllu heldur. Lögreglan telur að þarna hafi yfirbygging á einhvers konar hýsi fokið…Lesa meira

true

Söngskemmtun eldri borgara í Borgarneskirkju

Það var stemning og eftirvænting þegar þrír kórar eldri borgara héldu okkur hinum og sér sjálfum skemmtun í Borgarneskirkju fyrr í vikunni. Þessi skemmtun kóranna er lokapunktur þess starfs sem hófst í haust og lýkur með vorinu. Kór eldri borgara í Borgarbyggð bauð að þessu sinni félögum og vinum af Akranesi og Kópavogi til sín,…Lesa meira

true

Reynir ráðinn byggingarfulltrúi í Stykkishólmi

Höskuldur Reynir Höskuldsson hefur verið ráðinn í stöðu byggingarfulltrúa hjá Sveitarfélaginu Stykkishólmi en hann mun einnig sinna verkefnum í Eyja- og Miklaholtshreppi í gegnum þjónustusamning við Stykkishólm. Reynir lauk B.Ed. prófi í byggingarfræði frá VIA University College í Danmörku árið 2019 en hann hefur undanfarin ár verið búsettur á Egilsstöðum og starfað þar við byggingastarfsemi…Lesa meira

true

Þemadagar í Grunnskóla Grundarfjarðar – Myndir

Það var mikið um að vera í Grunnskóla Grundarfjarðar fimmtudaginn 21. mars en þá voru nemendur með opið hús og glæsilega sýningu á verkefnum sem unnin voru á þemadögum. Þarna kenndi ýmissa grasa og mátti sjá hvaða verkefni voru krökkunum hugleikin og ljóst að fulltrúar Grundarfjarðarbæjar þurfa að hugsa stórt ef verkefnin eiga að verða…Lesa meira

true

Bárumótið var haldið í Bjarnalaug

Árlegt innanfélagsmót Sundfélags Akraness, Bárumótið, fór fram í gær í Bjarnalaug við Laugarbraut. Á mótinu taka krakkar á aldrinum 8 til 12 ára þátt. Mótið gekk mjög vel og sjá mátti miklar framfarir hjá þessum efnilegu sundmönnum en 30 keppendur stungu sér í laugina. Allir keppendur fengu verðlaunapening fyrir þátttökuna og stigahæsta stelpan og strákurinn…Lesa meira

true

Fasteignaeigendur í Borgarnesi greiða hæstu gjöldin

Byggðastofnun fékk Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) til að reikna út fasteignamat og kostnað við að eiga sömu viðmiðunarfasteignina um land allt. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 fermetrar að grunnfleti og 476 rúmmetrar á 808 fm lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2024 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út…Lesa meira

true

Mikil fjölbreytni á árshátíð í Logalandi

Nemendur Kleppjárnsreykjadeildar Grunnskóla Borgarfjarðar héldu árshátíð sína í Logalandi miðvikudaginn 20. mars sl. við húsfylli að venju. Á Kleppjárnsreykjum er 1.-10. bekkur og koma nemendur úr Skorradal, Bæjarsveit, Lundarreykjadal, Flókadal, Reykholtsdal, Hálsasveit og efri hluta Hvítársíðu. Hvert stig var með atriði sem þau höfðu unnið að síðustu daga með kennurum sínum. Yngsta stigið sýndi myndband…Lesa meira

true

Settu upp Emil í Kattholti á árshátíð

Árshátíð Hvanneyrardeildar í Grunnskóla Borgarfjarðar var haldin við mikinn fögnuð áhorfenda þriðjudaginn 19. mars sl. Í skólanum á Hvanneyri eru nemendur í 1.-5. bekk og koma flestir af Hvanneyrarsvæðinu og Skorradal. Á árshátíðinni sýndu nemendur leikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Allir nemendur skólans tóku þátt en mikill undirbúningur var búinn að vera undanfarnar…Lesa meira

true

Leikritaþema á árshátíð Lýsudeildar

Árshátíð Lýsudeildar Grunnskóla Snæfellsbæjar var haldin föstudaginn 15. mars sl. Nemendur í leikskólaselinu Lýsukoti sýndu Hans og Grétu og nemendur í 1.-3. bekk sýndu Greppikló. Nemendur 4.-5. bekkjar sýndu Skjáhrafna sem er nútímaleikrit, samið af nemendum og kennara með Hans og Grétu þema og nemendur í 7.–10. bekk sýndu styttri útgáfu af Benedikt búálfi. „Árshátíðin…Lesa meira