
Frá sýningunni á Hvanneyri. Ljósm. gbf
Settu upp Emil í Kattholti á árshátíð
Árshátíð Hvanneyrardeildar í Grunnskóla Borgarfjarðar var haldin við mikinn fögnuð áhorfenda þriðjudaginn 19. mars sl. Í skólanum á Hvanneyri eru nemendur í 1.-5. bekk og koma flestir af Hvanneyrarsvæðinu og Skorradal. Á árshátíðinni sýndu nemendur leikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Allir nemendur skólans tóku þátt en mikill undirbúningur var búinn að vera undanfarnar vikur.