
Hér má sjá skjáskot af töflu Byggðastofnunar sem sýnir heildar kostnað húseigenda á Vesturlandi. Athygli er vakin á því að Rif og Akranes lenda neðan við línuna á mælaborði Byggðastofnunar og eru því ekki sýnileg á töflunni en þar er heildarkostnaður 406 þúsund krónur á ári á báðum þéttbýlisstöðunum.
Fasteignaeigendur í Borgarnesi greiða hæstu gjöldin
Byggðastofnun fékk Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) til að reikna út fasteignamat og kostnað við að eiga sömu viðmiðunarfasteignina um land allt. Viðmiðunareignin er einbýlishús sem er 161,1 fermetrar að grunnfleti og 476 rúmmetrar á 808 fm lóð. Fasteignagjöld eru reiknuð út af Byggðastofnun samkvæmt álagningarreglum ársins 2024 eins og þær eru í hverju sveitarfélagi, út frá fasteignamatinu sem HMS reiknar og gildir frá síðustu áramótum. Útreikningar voru gerðir fyrir 103 matssvæði í 49 sveitarfélögum.