Krakkarnir á yngsta stiginu voru með söngatriði fyrir gesti. Ljósmyndir: tfk

Þemadagar í Grunnskóla Grundarfjarðar – Myndir

Það var mikið um að vera í Grunnskóla Grundarfjarðar fimmtudaginn 21. mars en þá voru nemendur með opið hús og glæsilega sýningu á verkefnum sem unnin voru á þemadögum. Þarna kenndi ýmissa grasa og mátti sjá hvaða verkefni voru krökkunum hugleikin og ljóst að fulltrúar Grundarfjarðarbæjar þurfa að hugsa stórt ef verkefnin eiga að verða að veruleika. Nokkrar útgáfur af rennibrautum í sundlaugina, stólalyfta í skíðabrekkuna, McDonalds veitingastað í miðbæinn, hjólabrettagarð og sitthvað fleira. Einnig voru margir með kynningar á starfsemi sem er nú þegar til staðar í Grundarfirði eins og líkamsræktarstöðvunum, slökkviliðinu, fiskvinnslunum og fleiru. Svo var hægt að kaupa ilmandi vöfflur að sýningu lokinni. Það var margt forvitnilegt að sjá og ljóst að krakkarnir sátu ekki auðum höndum á þemadögum.

Þemadagar í Grunnskóla Grundarfjarðar - Myndir - Skessuhorn