Söngskemmtun eldri borgara í Borgarneskirkju

Það var stemning og eftirvænting þegar þrír kórar eldri borgara héldu okkur hinum og sér sjálfum skemmtun í Borgarneskirkju fyrr í vikunni. Þessi skemmtun kóranna er lokapunktur þess starfs sem hófst í haust og lýkur með vorinu. Kór eldri borgara í Borgarbyggð bauð að þessu sinni félögum og vinum af Akranesi og Kópavogi til sín, en kórarnir hafa átt samstarf í nokkuð mörg ár og hittast þá sitt á hvað í heimabæjum sínum.

Söngskemmtun eldri borgara í Borgarneskirkju - Skessuhorn