
Betur fór en á horfðist þegar eftirvagn fauk af þjóðvegi eitt, við Hafnarfjall, síðastliðinn þriðjudag. Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi slasaðist enginn en vindhviða hefur náð að grípa eftirvagninn með þeim afleiðingum að hann stendur nú utan vegar, eða grindin ein öllu heldur. Lögreglan telur að þarna hafi yfirbygging á einhvers konar hýsi fokið…Lesa meira








