
Aðsókn í Guðlaugu hefur aukist þrátt fyrir verðhækkun. Ljósm. vaks
Fjölgun gesta í Guðlaugu fyrstu þrjá mánuði ársins
Um síðustu áramót tók ný gjaldskrá gildi í Guðlaugu á Akranesi. Stakur miði fyrir 18 ára og eldri fór úr 500 krónum í 2500 krónur en frítt var áfram fyrir 17 ára og yngri. Stakur miði fyrir eldri borgara kostar 1250 krónur og allir þeir sem eru með árskort í Jaðarsbakkalaug fá frítt í Guðlaugu.