Fréttir

true

Nýr liðsmaður á ritstjórn Skessuhorns

Borgnesingurinn Hafþór Ingi Gunnarsson hefur verið ráðinn í starf blaðamanns á Skessuhorni. Hann er menntaður blikksmiður og með BS próf í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum. Undanfarin ár hefur hann m.a. starfað við ferðaþjónustu og sem verkefnastjóri við ýmis verkefni m.a. hjá Umhverfisstofnun og þá stýrði hann útivistar- og gönguleiðarverkefnum fyrir Markaðsstofu Vesturlands. Haffi er…Lesa meira

true

Snæfell tapaði á móti Val í hörkuleik

Valur og Snæfell mættust í 2. umferð B deildar kvenna í Subway deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í N1 höllinni á Hlíðarenda. Liðin skiptust á að ná forystu á fyrstu mínútunum og staðan 10:9 fyrir Val eftir fimm mínútna leik. Þegar fyrsta leikhluta lauk var munurinn þrjú stig á milli liðanna Val…Lesa meira

true

Möguleg er loðnuganga fyrir suðaustan land

Síðastliðna viku hefur mælst afar lítið af loðnu í annarri yfirferð loðnumælinga á árinu. Íslensk uppsjávarveiðiskip tóku einnig að sér að sigla eftir ákveðnum leiðarlínum til og frá kolmunnaveiðum suður af Færeyjum. Það bar árangur strax á fyrsta degi þegar Svanur RE rakst á torfur suðaustur af landinu í gær 13. febrúar á suður hluta…Lesa meira

true

Hótun gagnvart starfsfólki MAST kærð til lögreglu

Atvik þar sem starfsfólki Matvælastofnunar var hótað við reglubundið eftirlit hjá matvælafyrirtæki, hefur verið kært til lögreglu. „Í almennum hegningarlögum segir að hver sá sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfs skal…Lesa meira

true

Fjör á öskudegi í leikskólum á Akranesi – Myndasyrpa

Það var mikil eftirvænting í leikskólum Akraness þegar börnin mættu í morgun í alls konar búningum og múnderingum. Blaðamaður Skessuhorns kom fyrst við í morgunsárið á Vallarseli þar sem öskudagsball var í gangi og síðan var slegið úr tunnunni af miklum móð. Á Teigaseli stóðu börnin stillt í röð og biðu þess að fá að…Lesa meira

true

Öskudagur í Brekkó og Grundó – Myndasyrpa

Það var fín stemning í grunnskólunum á Akranesi í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn. Hann kom snemma við í Brekkubæjarskóla og þar var allt á rólegu nótunum en margir voru búnir að klæða sig upp í tilefni dagsins. Þegar blaðamaður leit svo við í Grundaskóla eftir kaffitímann voru eldri nemendur á sal í…Lesa meira

true

Allir söngglaðir velkomnir!

Á ritstjórn Skessuhorns við Garðabraut 2a er í dag til klukkan 15 tekið fagnandi á móti söngglöðum ungmennum – á öllum aldri. Verið velkomin!Lesa meira

true

„Ég er enn að upplifa þetta ástand sem svona óraunveruleika tímabil“

Rætt við einn af þúsundum Grindvíkinga sem flýja þurftu bæinn sinn Sjötta eldgosið á þremur árum hófst á Reykjanesi síðastliðinn fimmtudagsmorgun, en fyrsta gosið á eldgosasvæðinu varð í Fagradalsfjalli 24. mars 2021. Síðustu þrjú gosin hafa orðið með innan við mánaðar millibili og óþægilega nærri byggðinni í Grindavík. Þau hófust í kjölfar kröftugra jarðskjálfta og…Lesa meira

true

Öskudagur haldinn hátíðlegur víða um Borgarnes

Mikill metnaður var í Borgnesingum í morgunsárið en víða var að sjá ýmsar ofurhetjur á sveimi. Má það vera að þessi metnaðarfullu börn, unglingar og jafnvel fullorðnir einnig mæti í fyrirtæki í dag og taki lagið. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Uglukletti í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarness og á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi í morgun.Lesa meira

true

Leiðrétt – nöfn tveggja féllu út

Í frétt í Skessuhorni sem kom út í dag og sömuleiðis í frétt hér á vefnum í byrjun vikunnar var sagt frá því að á Borgarnesblótinu sl. laugardag var tikynnt um hver væri útnefndur Borgnesingur ársins 2023, en það var í sjötta skipti sem verðlaun þessi eru afhent, en ekki í fjórða skipti eins og…Lesa meira