
Auðunn Jakob, Írena og Aron Myrkvi í Uglukletti. Ljósmyndir: HIG
Öskudagur haldinn hátíðlegur víða um Borgarnes
Mikill metnaður var í Borgnesingum í morgunsárið en víða var að sjá ýmsar ofurhetjur á sveimi. Má það vera að þessi metnaðarfullu börn, unglingar og jafnvel fullorðnir einnig mæti í fyrirtæki í dag og taki lagið. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Uglukletti í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarness og á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi í morgun.