
Texti og myndir: vaks
Fjör á öskudegi í leikskólum á Akranesi – Myndasyrpa
Það var mikil eftirvænting í leikskólum Akraness þegar börnin mættu í morgun í alls konar búningum og múnderingum. Blaðamaður Skessuhorns kom fyrst við í morgunsárið á Vallarseli þar sem öskudagsball var í gangi og síðan var slegið úr tunnunni af miklum móð. Á Teigaseli stóðu börnin stillt í röð og biðu þess að fá að slá í tunnuna sem þau gerðu af mismiklum krafti. Að síðustu var svo förinni heitið á Akrasel þar sem þau yngri voru mætt á sal og slógu síðan í tunnuna til skiptis við starfsmenn leikskólans svo að kötturinn eða það sem var í tunnunni kæmi einhvern tímann út.