
Texti og myndir: vaks
Öskudagur í Brekkó og Grundó – Myndasyrpa
Það var fín stemning í grunnskólunum á Akranesi í morgun þegar blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn. Hann kom snemma við í Brekkubæjarskóla og þar var allt á rólegu nótunum en margir voru búnir að klæða sig upp í tilefni dagsins. Þegar blaðamaður leit svo við í Grundaskóla eftir kaffitímann voru eldri nemendur á sal í leikjum og að syngja karókí. Í þetta skiptið klæddu bekkirnir á eldri stigunum sig í stíl og voru ansi flottir í alls konar búningum. Blaðamaður Skessuhorns læddist með veggjum og fékk að taka nokkrar myndir af nemendum.