Fréttir

true

„Ég er enn að upplifa þetta ástand sem svona óraunveruleika tímabil“

Rætt við einn af þúsundum Grindvíkinga sem flýja þurftu bæinn sinn Sjötta eldgosið á þremur árum hófst á Reykjanesi síðastliðinn fimmtudagsmorgun, en fyrsta gosið á eldgosasvæðinu varð í Fagradalsfjalli 24. mars 2021. Síðustu þrjú gosin hafa orðið með innan við mánaðar millibili og óþægilega nærri byggðinni í Grindavík. Þau hófust í kjölfar kröftugra jarðskjálfta og…Lesa meira

true

Öskudagur haldinn hátíðlegur víða um Borgarnes

Mikill metnaður var í Borgnesingum í morgunsárið en víða var að sjá ýmsar ofurhetjur á sveimi. Má það vera að þessi metnaðarfullu börn, unglingar og jafnvel fullorðnir einnig mæti í fyrirtæki í dag og taki lagið. Meðfylgjandi myndir voru teknar í Uglukletti í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarness og á heilsugæslustöðinni í Borgarnesi í morgun.Lesa meira

true

Leiðrétt – nöfn tveggja féllu út

Í frétt í Skessuhorni sem kom út í dag og sömuleiðis í frétt hér á vefnum í byrjun vikunnar var sagt frá því að á Borgarnesblótinu sl. laugardag var tikynnt um hver væri útnefndur Borgnesingur ársins 2023, en það var í sjötta skipti sem verðlaun þessi eru afhent, en ekki í fjórða skipti eins og…Lesa meira

true

Opnum dögum í FVA lýkur í kvöld

Nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi fengu frí frá hefðbundinni stundaskrá í þessari viku þegar árlegir opnir dagar eru í skólanum. Þá gefst nemendum kostur á að taka þátt í mörgum ólíkum viðburðum, námskeiðum og alls konar afþreyingu. Þar má nefna fyrirlestra, golfhermi, pílu, bollakökuskreytingar, uppistandsnámskeið, smíði fuglahúss, flugukastsnámskeið, bíó, félagsvist og margt fleira. Opnum…Lesa meira

true

Hitafundur um friðlýsingarmál

Húsfyllir var á fundi sem Umhverfisstofnun (UST) hélt í félagsheimilinu Lyngbrekku á Mýrum í gær, mánudag. Til fundarins voru boðaðir landeigendur innan tillögusvæða á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár, allt frá Langárósi og vestur á Snæfellsnes. Miklar og heitar umræður urðu á fundinum og landeigendur telja enn margra svara vant. Fyrri fundur var 18. janúar Í fundarboði UST…Lesa meira

true

Varlega skal aka um Borgarbrautina

Sá kafli Borgarbrautar í Borgarnesi, frá gatnamótum Böðvarsgötu og að gatnamótum Skallagrímsgötu, minnir á löngu liðna tíma í þéttbýli. Þar eru holur nú í bland við klakabunka. Eftir framkvæmdir á síðasta ári náðist ekki að setja bundið slitlag á götuna og er hún því malarvegur líkt og fólk til sveita býr við alla daga ársins.…Lesa meira

true

Sundmenn SA stóðu sig vel á gullmóti KR

Gullmót KR í sundi var haldið um síðustu helgi í Laugardalslaug og tóku 19 sundmenn frá Sundfélagi Akraness þátt í mótinu. Að sögn Kjell Wormdal, yfirþjálfara SA, var sundfélagið með krakka frá níu ára aldri á mótinu um helgina en þetta er eitt af gistimótum ársins og stemningin meðal krakkanna var mjög góð alla helgina.…Lesa meira

true

Áhersla á öryggi við sjó og vötn á 112 deginum

Víða um land var 112 dagurinn haldinn hátíðlegur á sunnudaginn. Áhersla þetta árið var lögð á öryggi við sjó og vötn „Það er búið að vera ofarlega í okkar huga upp á síðkastið,“ segir Vigdís Ósk Viggósdóttir, formaður Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi í samtali við Skessuhorn. „Í fjörunum við Borgarnes er oft ís á þessum…Lesa meira

true

Skemmtileg helgi að baki á Skíðasvæði Snæfellinga – Myndasyrpa

Skíðaþyrstir Snæfellingar fengu heldur betur frábærar aðstæður um liðna helgi í heimabyggð. Veðrið lék við gesti á svæðinu en boðið var upp á fullorðins opnun þar sem óreyndir skíðaiðkendur á besta aldri gátu fengið leiðsögn á bretti, skíði og hvernig á að taka lyftuna í rólegheitunum. Þetta tókst vel og margir sem renndu sér í…Lesa meira

true

Skreytingar úr nærumhverfinu á veggjum Bónus

Verslanakeðjan Bónus vinnur að því þessi misserin að skreyta veggi í verslunum sínum með teikningum af þekktum kennileitum úr nærumhverfinu. Í versluninni á Akranesi eru þannig teikningar af Akrafjalli, vitunum á Breið, Akraneshöll og fleiru. Í versluninni í Borgarnesi er teikning af Hafnarfjalli og kirkjunni á holtinu. Til stendur í vor að gera sambærilega skreytingu…Lesa meira