
Á Borgarnesblótinu síðastliðið laugardagskvöld í Hjálmakletti í Borgarnesi var tilkynnt um hver væri útnefndur Borgnesingur ársins 2023. Er þetta í sjötta sinn sem staðið er að þessari útnefningu á Borgarnesblóti. Áður hafa Ingimundur Ingimundarson, Þorsteinn Eyþórsson, Guðrún Birna Haraldsdóttir, Guðrún Daníelsdóttir og Eiður Sigurðsson hlotnast þessi heiður. Að þessu sinni er Erlendur Samúelsson Borgnesingur ársins.…Lesa meira








