Grindavík jarðhræringar

Frumvarp um uppkaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík aðgengilegt á Samráðsgátt

Frumvarp um uppkaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í Grindavík var kynnt í ríkisstjórn í gærmorgun og lagt í samráðsgátt síðar um daginn. Ríkissjóður mun nú bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarður króna. Frumvarpið verður lagt fram á Alþingi í næstu viku.

Til þess að framkvæma aðgerðina mun ríkið stofna og fjármagna sérstakt félag, Fasteignafélagið Þórkötlu. Það mun hafa það hlutverk að kaupa fasteignirnar og bera ábyrgð á rekstri þeirra fyrir hönd ríkissjóðs. Félagið mun bera allan umsýslukostnað vegna kaupa á fasteignunum. Gert er ráð fyrir að félagið eigi tilkall til mögulegra bóta úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) og beri mögulegan kostnað við niðurrif komi til þess. Frumvarpið gerir ráð fyrir að fasteignirnar verði keyptar á verði sem nemur 95% af brunabótamati að frádregnum veðskuldum. Kaupverðið byggir á samsvörun við bótagreiðslur úr Náttúruhamfaratryggingu Íslands en ljóst er að mikil óvissa er um framtíð íbúðarhúsnæðisins, t.d. möguleg förgun.

Fjármögnun félagsins verður með tvenns konar hætti. Í fyrsta lagi, með láni lánveitenda í Grindavík og ríkissjóðs. Þannig mæta lánveitendur þeirri óvissu sem er uppi um virði eigna á svæðinu. Í öðru lagi, með eiginfjárframlagi frá ríkissjóði. Enn er gert ráð fyrir að hluti af framlagi ríkissjóðs sé fjármagnaður með eignum NTÍ.

Opið verður fyrir athugasemdir við frumvarpið til mánudags, en vegna mikilvægis þess að hraða meðferð málsins er ekki svigrúm til að veita rýmri tíma. Í framhaldinu verður unnið úr athugasemdum og mun fjármála- og efnahagsráðherra leggja frumvarpið fram á Alþingi í næstu viku.

Upplýsingasíða og umsóknir fyrir Grindvíkinga á Ísland.is

Þegar frumvarpið hefur verið afgreitt frá Alþingi verður leiðbeiningum um hvað Grindvíkingar þurfa að undirbúa fyrir umsóknina sem og umsókn um uppkaup komið fyrir á upplýsingasíðu Grindvíkinga á Ísland.is. Sömuleiðis verður þar að finna algengar spurningar varðandi undirbúning og útfærslur aðgerðarinnar. Er þetta gert til að auðvelda afgreiðslu á stuðningi stjórnvalda til Grindvíkinga. Umsókn um uppkaup verður gefinn rúmur tími og verður opið fyrir þær til 1. júlí 2024. Þeim sem geta ekki nýtt sér stafræna umsókn á Ísland.is eða eru undanþegnir lögheimilisskráningu á þessum tíma er bent á þjónustumiðstöð Grindvíkinga í Tollhúsinu.

Nú um hádegi á laugardag hafa 43 skrifað umsögn við frumvarpið, en bein slóð á drögin er hér:

Frumvarp um uppkaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík aðgengilegt á Samráðsgátt - Skessuhorn