
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, færði Ingimundi áritaðan skjöld í ljósi þess að áður hefur hann unnið til allra heiðursviðurkenningar hjá félaginu. Ljósm. aðsend
Ingimundur fagnaði afmæli sínu í góðra vina hópi
Borgnesingurinn og íþróttakennarinn Ingimundur Ingimundarson fagnaði 80 ára afmæli á laugardaginn. Veisla var haldin í sal í stúkunni hjá Breiðabliki í Kópavogi. Þar var margt um manninn og heilmikið húllumhæ. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, kom í afmælið, flutti stutta tölu um afrek Ingimundar í gegnum tíðina og afhenti honum áritaðan skjöld í tilefni dagsins. Sagði hún m.a. að Ingimundur hafi í áranna rás fengið allar heiðursviðurkenningar fyrir störf sín í þágu ungmennafélagshreyfingarinnar og því hafi UMFÍ orðið að grípa til annarra ráða til að heiðra hann að þessu sinni.