
F.v. Jóna Björg Kristinsdóttir endurskoðandi, Kristján Jóhannesson varamaður, Sigrún Sólmundardóttir varamaður, Jóhanna G Harðardóttir formaður, Anna G. Torfadóttir stjórnarmaður og Áskell Þórisson stjórnarmaður.
Stofnuðu Félag eldri borgara í Hvalfjarðarsveit
Stofnfundur Félags eldri borgara í Hvalfjarðarsveit, FEBHV, var haldinn sunnudaginn 11. febrúar í Miðgarði. Að fundinum stóðu fulltrúar eldri borgara í Öldungaráði Hvalfjarðarsveitar; þau Anna G. Torfadóttir, Áskell Þórisson og Jóhanna G. Harðardóttir sem unnið hafa undirbúningsvinnu að stofnun þess og m.a. sótt um aðild til Landssambands eldri borgara; LEB. Á fundinum voru samþykkt lög félagsins, en í þeim kemur m.a. fram að tilgangur þess sé að stuðla að bættri aðstöðu og þjónustu fyrir eldri borgara í Hvalfjarðarsveit og vinna að fræðslu,- tómstunda- og félagsstarfi íbúa eldri en 60 ára.