Fjölmenni perlar í dag í FVA – myndasyrpa

Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú yfir. Lokavika átaksins er nú í gangi og Kraftur heldur áfram að selja „Lífið er núna“ armbönd sem eru perluð af sjálfboðaliðum víða um land. Kraftur, í samstarfi við TeamTinna og Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis, perlar í dag í sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Byrjað var að perla klukkan 13 og verður setið að til klukkan 16. Þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við á öðrum tímanum í dag var nánast fullur salur - og frábær stemning. Ungir sem aldnir tóku þar höndum saman. Engu skipti þótt menn tefldu fram tíu þumalfingrum, allir gátu perlað í þágu góðs málefnis.

Fjölmenni perlar í dag í FVA - myndasyrpa - Skessuhorn