Fréttir

true

Perlað verður á Akranesi á sunnudaginn og í Borgarnesi á þriðjudaginn

Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú yfir. Lokavika átaksins er nú gengin í garð og Kraftur heldur áfram að selja „Lífið er núna“ armbönd sem eru perluð af sjálfboðaliðum víða um land. „Við erum búin að fara hringinn í kringum landið með perluviðburði á…Lesa meira

true

Bilun í neyðarsíma 112 – önnur númer tiltæk

Símkerfi Neyðarlínunnar er bilað og netspjallið er óvirkt. Nái fólk ekki inn í gegnum símanúmerið 112 er fólki bent á símanúmerin 864–0112, 849–5320 og 831–1644. Vakin er athygli á því að fólk á aðeins að hringja í þessi númer í ítrustu neyð.Lesa meira

true

Úrslitaþáttur Idolsins í kvöld – Lagið Skýjaborgir komið á Spotify

Þetta er að skella á! Ný Idolstjarna Íslands verður krýnd í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni í Gufunesi í beinni útsendingu á Stöð 2. Anna Fanney Kristinsdóttir, Björgvin Þór Þórarinsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir standa þrjú eftir og keppast um að verða næsta Idol stjarna Íslands. Þema þáttarins verður „Þetta er ég“ og mun hver…Lesa meira

true

Kynna tillögur að frumhönnun gamla bæjarhlutans í Borgarnesi

Tillögur að frumhönnun á svæðinu frá Skallagrímsgarði að Brákarsundi hafa verið birtar. Þær sýna hvernig þróa mætti gamla bæjarhlutann í Borgarnesi með torgum og almenningsrýmum. Tillögurnar, sem unnar voru af þverfaglegu teymi arkitekta, skipulagsfræðinga, sagnfræðinga og ráðgjafa í umhverfissálfræði á vegum Alternance slf, voru nýverið kynntar fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar og eru nú opnar almenningi á…Lesa meira

true

Skagamenn með sigur í fyrsta leik í Lengjubikarnum

ÍA og Afturelding áttust við í A deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir á 15. mínútu og tveimur mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks skoraði Slóveninn Marko Vardic annað mark ÍA í leiknum en Marko gekk til liðs við Skagamenn frá Grindavík eftir síðasta…Lesa meira

true

Hratt dregur úr virkni eldgossins

Dregið hefur verulega úr gosóróa síðan í gær en það byrjaði að draga úr honum upp úr hádegi í gær þegar virkni á gossprungunni minnkaði einnig. Tímabundnar hækkanir sáust á gosóróa í gærkvöldi en samhliða því jókst virkni í gígunum. Í nótt dró enn frekar úr virkni gossins en milli kl. 7 og 8 í…Lesa meira

true

Baski með námskeið í Stúkuhúsinu

Myndlistarmaðurinn Baski, Bjarni Skúli Ketilsson, sem býr í Hollandi er þessa dagana staddur í sínum gamla heimabæ Akranesi og heldur myndlistarnámskeið í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið í Görðum. Námskeiðinu lýkur í lok næstu viku en þetta er sextánda árið sem Baski heldur þetta námskeið. Hefur hann haft aðstöðu fyrir það á ýmsum stöðum í gegnum tíðina…Lesa meira

true

Stórnotendum heimilt að selja inn á kerfið

Landsvirkjun hefur tilkynnt stórnotendum sínum að þeim sé frjálst að endurselja forgangsraforku vegna þröngrar stöðu í raforkukerfinu, kjósi þeir að gera það. Undanfarið hefur Landsvirkjun þurft að grípa til skerðinga hjá stórnotendum vegna þurrkatíðar sem leitt hefur til dræms innrennslis í miðlunarlón og lágrar lónstöðu. Í tilkynningu frá Landsvirkjun kemur fram að í flestum samningum…Lesa meira

true

Héldu upp á dag leikskólans með bæjarferð

Þann 6. febrúar ár hvert er haldið upp á dag leikskólans um allt land. Á leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði var haldið upp á daginn með því að leikskólabörn fóru í valin fyrirtæki í bænum með gjafir. Ugludeild og hluti af Músadeild fóru með listaverk í Ragnar og Ásgeir og Guðmund Runólfsson hf. og Drekadeild fór…Lesa meira

true

Samningur undirritaður við Basalt arkitekta

Samningur Akraneskaupstaðar og Ísoldar fasteignafélags ehf. við Basalt arkitekta ehf. vegna ráðgjafar við hönnun skipulags Jaðarsbakkasvæðisins var undirritaður síðasta þriðjudag. Fram kemur á vefsíðu Akraneskaupstaðar að bæjarstjórn hafi samþykkt tillögu skipulags- og umhverfisráðs um að ganga til samninga við Basalt um ráðgjöf við deiliskipulagsgerð Jaðarsbakkasvæðisins, eftir að Basalt, ásamt þremur öðrum arkitektastofum, skiluðu af sér…Lesa meira