Baski að leiðbeina Sigríði Rafnsdóttur. Ljósm. vaks

Baski með námskeið í Stúkuhúsinu

Myndlistarmaðurinn Baski, Bjarni Skúli Ketilsson, sem býr í Hollandi er þessa dagana staddur í sínum gamla heimabæ Akranesi og heldur myndlistarnámskeið í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið í Görðum. Námskeiðinu lýkur í lok næstu viku en þetta er sextánda árið sem Baski heldur þetta námskeið. Hefur hann haft aðstöðu fyrir það á ýmsum stöðum í gegnum tíðina eins og á Byggðasafninu í Görðum, Sementsverksmiðjunni, Gamla Iðnskólanum og nú í Stúkuhúsinu.

Baski með námskeið í Stúkuhúsinu - Skessuhorn