
Perlað verður á Akranesi á sunnudaginn og í Borgarnesi á þriðjudaginn
Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú yfir. Lokavika átaksins er nú gengin í garð og Kraftur heldur áfram að selja „Lífið er núna“ armbönd sem eru perluð af sjálfboðaliðum víða um land. „Við erum búin að fara hringinn í kringum landið með perluviðburði á Akureyri, Neskaupstað, Höfn og á Selfossi. Þá verðum við með Perluviðburð bæði á Akranesi og Borgarnesi á næstunni. Akranes verður núna sunnudaginn 11. febrúar og svo verður við í Borgarnesi þriðjudaginn 13. febrúar,“ segir í tilkynningu frá Krafti.
Kraftur, í samstarfi við TeamTinna og Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis, ætlar að perla á Akranesi sunnudaginn 11. febrúar í Fjölbrautaskóla Vesturlands Akranesi (FVA). Opið hús verður milli kl. 13:00 og 16:00 og geta allir komið og lagt hönd á perlu í lengri eða skemmri tíma.
Þá verður perlað í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi þriðjudaginn 13. febrúar. Opið hús verður milli kl. 15:00 og 18:00 og geta allir komið og lagt hönd á perlu í lengri eða skemmri tíma. Í boði verður kaffi, drykkir og kruðerí. Tilvalið tækifæri til að eiga skemmtilega stund með fjölskyldu og vinum, og um leið leggja góðu málefni lið.
Loks er minnt á að hægt er að nálgast „Lífið er núna“ armböndin í vel völdum Krónuverslunum og Hagkaupsverslunum, í vefverslun Krafts www.lifidernuna.is og víðar. Allur ágóði af sölu armbandanna rennur í starf Krafts í þágu ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur og eru öll armböndin perluð af kröftugum sjálfboðaliðum.