
Séð yfir Skallagrímstorg. Teikningar: Sögutorgin.is
Kynna tillögur að frumhönnun gamla bæjarhlutans í Borgarnesi
Tillögur að frumhönnun á svæðinu frá Skallagrímsgarði að Brákarsundi hafa verið birtar. Þær sýna hvernig þróa mætti gamla bæjarhlutann í Borgarnesi með torgum og almenningsrýmum. Tillögurnar, sem unnar voru af þverfaglegu teymi arkitekta, skipulagsfræðinga, sagnfræðinga og ráðgjafa í umhverfissálfræði á vegum Alternance slf, voru nýverið kynntar fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar og eru nú opnar almenningi á heimasíðu verkefnisins www.sogutorgin.is. Þær sýna hugmyndir sérfræðinga Alternance sem byggðar eru á rannsóknum og íbúasamráði. Á síðunni má til að mynda skoða kort, þrívíddarmyndir og myndbönd með dæmi um útfærslu.