Fréttir

true

Endurnýja samstarfssamning um leit og björgun á Faxaflóa

Endurnýjað hefur verið samstarf nokkurra aðila um gagnkvæma aðstoð vegna björgunar og aðstoðar við sjófarendur á Faxaflóa. Að samkomulaginu standa Faxaflóahafnir, Slysavarnarfélagið Landsbjörg, Björgunarbátasjóður Reykjavíkur, Björgunarsveitin Ársæll, Björgunarsveitin Kjölur, Björgunarfélag Akranes og Björgunarsveitin Brák. Í tilkynningu segir að markmið samkomulagsins sé að stuðla að samstarfi og eins góðum viðbúnaði björgunaraðila og kostur er við Faxaflóa.…Lesa meira

true

Þekkir einhver nöfnin?

Skessuhorni barst beiðni frá Huldu á Fitjum í Skorradal um að birta þessar myndir sem líklega eru báðar af sama nemendahópnum við Kleppjárnsreykjaskóla. Huldu langar að fá upplýsingar um hverjir eru á myndunum, en líklega eru þetta árgangar 55-57 um það bil. Hún kveðst hafa reynt á mátt Facebook, en það ekki skilað árangri. Hulda…Lesa meira

true

Eldur kom upp í bifreið í göngunum

Í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku hafnaði bifreið út af við gatnamótin þar sem Brattabrekka og Vesturlandsvegur mætast en ekki urðu slys á fólki. Önnur bifreið hafnaði út af við Grundartanga og var ökumaður fluttur á brott með sjúkrabifreið til aðhlynningar. Bifreiðar höfnuðu einnig út af á Borgarfjarðarbraut og á Vesturlandsvegi við Sveinatungu…Lesa meira

true

Blá ljós í notkun

Þrátt fyrir vetrarfærð voru afskipti höfð af tólf ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna of hraðs aksturs í liðinni viku. Sá sem hraðast ók mældist á 139 km/klst þar sem hámarkshraði er 90 km. Einnig voru 28 ökumenn myndaðir með færanlegri hraðamyndavél embættisins. Afskipti voru höfð af tveimur ökumönnum vegna gruns um ölvun við…Lesa meira

true

Hvalur sækir um endurnýjun leyfis

Hvalur hf. hefur óskað eftir því við matvælaráðuneytið að leyfi fyrirtækisins til hvalveiða verði endurnýjað til næstu fimm ára. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun. Minnt er á að með vísan til nýlegs álits umboðsmanns Alþingis er samkvæmt stjórnarskrá öllum frjálst að stunda þá atvinnugrein sem þeir kjósa og verði það frelsi aðeins skert með…Lesa meira

true

Gul viðvörun við Faxaflóa frá klukkan 13-19 í dag

Í dag er gert ráð fyrir vestan 8-15 m/s og víða éljum á landinu, en 15-23 m/sek sunnanlands eftir hádegi og þar verður gul viðvörun í gildi. Á spásvæðinu Faxaflóa verður vestan 15-23 m/s, dimm él og skafrenningur með lélegu skyggni. Þar er gul viðvörun frá klukkan 13 til 19 í dag. Það verða erfið…Lesa meira

true

Vesturland á mikið inni og þar er gott að búa

Guðrún Björg Bragadóttir ferðaþjónustubóndi í Hörðudal tekin tali Laugardalur í allri sinni dýrð er verkefni sem hlaut atvinnu- og nýsköpunarstyrk úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands nýverið. Það er á vegum hjónanna Guðrúnar Bjargar Bragadóttur matreiðslumanns og Guðlaugs S. Sigurgeirssonar húsasmiðs sem hafa á undanförnum árum verið að byggja upp ferðaþjónustu í Dölum, á jörð sinni Tungu í…Lesa meira

true

Rakst utan í snjóplóg

Nokkuð var um útafakstur og óhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku enda vetrarfærð og víða nokkur hálka. Bílvelta varð á Hvalfjarðarvegi þar sem bifreið hafnaði utan vegar og valt, minni háttar meiðsli urðu á fólki sem var flutt á sjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar. Óhapp varð er ökumaður hugðist aka fram úr…Lesa meira

true

Vegagerðin varar við byl á morgun, miðvikudag

Frá því fyrir hádegi á morgun og þar til síðdegis hvessir með vestanátt um allt suðvestanvert landið. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að mikil lausamjöl er nú yfir og því verður umtalsverður skafrenningur og þá bætir einnig í með éljum og snjókomu. Bæði verður blint og hætt við verulegri ófærð jafnt innan bæjar sem úti…Lesa meira

true

Fjölmenni mætti á kynningarfund um sameiningarviðræður – fréttaskýring

Hreppsnefnd Skorradalshrepps bauð íbúum til opins kynningar- og umræðufundar í Brún á mánudagskvöldið um sameiningarmál. Fundinum stýrði af festu Páll S Brynjarsson framkvæmdastjóri SSV. Í auglýstri dagskrá voru framsöguerindi, kynning á óformlegum sameiningarviðræðum við Borgarbyggð ásamt umræðu um valkostagreiningu við önnur sveitarfélög. Þá var opnað fyrir umræður. Á fundinn mætti 31 íbúi í Skorradalshreppi og…Lesa meira