Fréttir

true

Aldrei fleiri látist í umferðinni

Aldrei hafa jafn margir látist í umferðarslysum á einum mánuði og nú í nýliðnum janúar. Hjón létust í umferðarslysi á Grindavíkurvegi 5. janúar. Tveir erlendir ferðamenn létust í umferðarslysi á þjóðveginum við Skaftafell 12. janúar. Einn lést í slysi á Vesturlandsvegi, skammt frá gatnamótum við Hvalfjarðarveg, 17. janúar. Einn lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við…Lesa meira

true

Vegagerðin bendir á hláku í dag og sviptingar í fyrramálið

Smám saman hlýnar í veðri í dag með tilheyrandi leysingum. Vegagerðin bendir á að við þær aðstæður verður flughált á sumum vegum, ekkí síst á Suður- og Vesturlandi. „Sviptingar eru í veðrinu og í fyrramálið má gera ráð fyrir hvassri suðvestan átt og hríðarveðri á fjallvegum eins og Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og Öxnadalsheiði. Stendur fram á…Lesa meira

true

Heitavatnslaust á hluta Akraness í kvöld

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að vegna viðgerða verður heitavatnslaust á hluta gamla bæjarins á Akranesi í kvöld, fimmtudaginn 1. febrúar frá klukkan 18 til 20. Svæðið sem um ræðir er: Skólabraut 16-30 og 17-37, Kirkjubraut 1-25 og 2-32, Melteigur 4-18 og 21, Suðurgata 47A-71, Laugarbraut 3-27 og 6-20, Víðigerði 2 og 1-3, Heiðargerði…Lesa meira

true

Vígja í dag nýtt hús fyrir félagsstarf eldri borgara

Í dag klukkan 16 verður nýtt hús Félags eldri borgara í Snæfellsbæ formlega opnað og því gefið nafn. Húsið er við Ólafsbraut 23 í Ólafsvík en það var reist úr húseiningum sem sveitarfélagið keypti notaðar. „Óhætt er að segja að húsið sé hið glæsilegasta og getur Félag eldri borgara nú haft alla sína blómlegu starfsemi…Lesa meira

true

Lögreglan minnir á mikilvægi endurskinsmerkja

Lögreglan á Vesturlandi minnir á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. „Foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað sér einnig til verndar,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Eva Björg hlaut Blóðdropann fyrir nýjustu bók sína

Í gær voru íslensku bókmenntaverðlaunin afhent á Bessastöðum við hátíðlega athöfn. Við sama tækifæri voru Íslensku glæpasagnaverðlaunin Blóðdropinn afhent. Það var Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sem afhenti verðlaunin.  Í flokki skáldverka hlaut Steinunn Sigurðardóttir verðlaunin fyrir bók sína Ból. Útgefandi er Mál og menning. Í flokki barna- og ungmennabóka hlutu Gunnar Helgason og Rán…Lesa meira

true

„Við ætlum bara að dúlla okkur“

Segja hjónin Steini og Ella sem ætla að hætta rekstri í vor Fyrirtækið Rammar og myndir á Akranesi hefur verið starfrækt frá árinu 1997 eða í næstum 27 ár. Hjónin Steinn Mar Helgason og Elín Klara Svavarsdóttir hafa verið eigendur Ramma & mynda frá upphafi. Þau keyptu núverandi húsnæði á Skólabraut 27 árið 1998 en…Lesa meira

true

Lönduðu þúsund tonnum af salti

Flutningaskipið Falksea lagðist að bryggju í Grundarfirði í síðustu viku og hófst uppskipun skömmu eftir að spottarnir höfðu verið tryggðir. Alls voru um eitt þúsund tonnum af salti skipað upp og fór megnið af því í saltskemmuna og hluti í vinnsluna hjá Soffaníasi Cecilsyni hf. Unnið var sleitulaust þar til verkinu var lokið og skipið…Lesa meira

true

Þorramót í Ringó var spilað í Borgarnesi

Sunnudaginn 28. janúar sl. fór fram í Íþróttahúsinu í Borgarnesi þorramót í ringó. Alls mættu til leiks átta lið; eitt frá HSK, tvö frá Glóðinni/Kópavogi, eitt frá FaMos/Mosfellsbæ, tvö frá USVH/ Vestur – Húnvetningar og tvö lið frá heimamönnu í UMSB. Allir léku við alla og því voru spilaðir 28 leikir þar sem spilað var…Lesa meira