Fréttir

true

Nemendur starfsbrautar FVA skelltu sér í Skorradal

Nokkrir nemendur af starfsbraut í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi skelltu sér í Skorradal síðasta þriðjudag. Þar dvaldi hópurinn í rúman sólarhring ásamt kennurum sínum og var gist í Skátafelli, sem er skáli Skátafélags Akraness. Á FB síðu FVA kemur fram að í ferðinni var meðal annars ætlunin að ganga um svæðið sem þau eru búin…Lesa meira

true

Tæpur helmingur tengi- og héraðsvega er í NV kjördæmi

Í svari Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur (D) alþingismanns í Suðurkjördæmi, kemur fram að meðalkostnaður við að koma bundnu slitlagi á tengi- og héraðsvegi í landinu er um 70 milljónir króna á hvern kílómetra. Því gæti það kostað um 150 milljarða króna að koma á bundnu slitlagi á þá 2.118 km sem…Lesa meira

true

Mikið um að vera síðustu daga á Silfurtúni

Það er búið að vera ansi mikið um gestakomur undanfarið á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal. Á sumardaginn fyrsta komu félagar úr Söngbræðrum í Borgarfirði og sungu inn sumarið. Síðan hefur hún Rósa heimalingur frá Magnússkógum í Búðardal komið þrisvar sinnum í heimsókn, glatt íbúa með uppátækjum sínum og fengið mörg knús í staðinn…Lesa meira

true

Næringarríkari jarðvegur skilar næringarríkari afurð

Rætt við Þórunni Ólafsdóttur og Harald Guðjónsson áhugafólk um lífræna jarðrækt og eigendur Dalahvítlauks Hjónin Þórunn Ólafsdóttir og Haraldur Guðjónsson eiga landskika í Neðri-Brekku í Saurbæ hvar þau hafa komið sér fyrir sælureit. Landið, sem er einn hektari að stærð, keyptu þau árið 1997 af Eysteini bónda í Bersatungu. Fljótlega eftir jarðarkaupin hófu þau að…Lesa meira

true

Alfreð Hjaltalín kominn heim í Ólafsvík

Knattspyrnumaðurinn Alfreð Már Hjaltalín hefur samþykkt að fá félagaskipti heim í Víking Ólafsvík og vera liðinu innan handar í sumar. Þetta kemur fram á FB síðu félagsins. Alfreð mun ekki geta helgað sig boltanum að fullu í sumar en ljóst að reynsla hans og gæði munu nýtast liðinu í sumar. Alfreð er fæddur árið 1994…Lesa meira

true

Reglugerð um strandveiðar en óvissa um nýtt frumvarp

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar. Alls verða tíu þúsund tonn af þorski í strandveiðipottinum á þessu veiðitímabili. Hlutfall strandveiða af leyfilegum heildarafla þorsks nemur því nú tæpum fimm prósentum sem er svipað og veiðitímabilið 2022 en þá var í fyrsta sinn svo stórum hluta leyfilegs heildarafla úthlutað til strandveiða. Í kjölfar…Lesa meira

true

Halda samstöðufund fyrir strandveiðarnar

Næstkomandi föstudag klukkan 17 hefur verið boðað til óformlegs samstöðufundar á fiskmarkaðinum við Akraneshöfn með þeim sjómönnum sem hyggjast stunda strandveiðar frá Akranesi í sumar. „Á fundinn er boðið smábátasjómönnum en einnig fulltrúum Fiskistofu, Faxaflóahafna, MAST, Heilbrigðiseftirlits Vesturlands og Hafró. Þetta verður óformlegur fundur þar sem m.a. verður farið yfir verklagsreglur um meðhöndlun afla og…Lesa meira

true

Þungt hljóð í félagsmönnum Fornbílafjelags

Aðalfundur Fornbílafjelags Borgarfjarðar var haldinn í gærkvöldi í húsi Gamla mjólkursamlagsins við Skúlagötu í Borgarnesi. Auk venjubundinna aðalfundarstarfa var einkum rætt um slæma stöðu félagsins í húsnæðismálum. Eins og kunnugt er lét Borgarbyggð loka húsnæði félagsins í Brákarey í byrjun árs 2021 vegna athugasemda sem gerðar höfðu verið um ófullnægjandi eldvarnir. Síðan hefur Borgarbyggð, sem…Lesa meira

true

Veiðibjallan farin að verpa í flóanum

Svartbakurinn, oft nefndur veiðibjalla en einnig bjalla, kaflabringur, kaflabrinki eða skári, er byrjaður að verpa í Garðaflóanum ofan við Akranes. Engu skiptir þó hitastigið sé niður undir frostmarki, bjallan lítur bara á dagatalið og verpir þegar sumardagurinn fyrsti er upp runninn. Á myndinni er Böðvar Ingvason sjómaður á Skaganum að ná sér í egg, en…Lesa meira

true

Sauðfjárbændur hvetja til stóraukins viðhalds girðinga

Sauðfjárbændur í Borgarfjarðarhéraði eru að vonum uggandi yfir tíðindum af riðusmiti í Miðfjarðarhólfi. Á fundi sínum í gær var eftirfarandi ályktun samþykkt: „Félag sauðfjárbænda i Borgarfjarðarhéraði sendir nágrönnum sínum í Miðfjarðarhólfi hlýjar kveðjur með von um að ekki greinist fleira fé með þennan hræðilega sjúkdóm sem riðuveiki er. Jafnframt skorar félagið á Matvælaráðuneytið, MAST og…Lesa meira